23.06.07 - 13:11
Arnar Geir Halldórsson
Fabio Quagliarella gengur endanlega til liðs við Udinese (Staðfest)

Fabio Quagliarella í leik með Sampdoria gegn Fiorentina

Mynd: Getty Images

Ítalinn eftirsótti Fabio Quagliarella hefur nú endanlega gengið til liðs við Udinese en bæði lið áttu helming í kappanum.
Quagliarella kom til Sampdoria frá Ascoli en þá keyptu Sampdoria í raun bara annan helminginn af leikmanninum ef svo má að orði komast en Udinese átti alltaf hinn helminginn og hefur nú tryggt sér leikmanninn endanlega.
Leikmaðurinn hefur verið mikið orðaður við Manchester United undanfarið en nú eru líkurnar á þeim viðskiptum litlar en Quagliarella sem er 23 ára skoraði 13 mörk í Serie A á síðasta tímabili.
,,Núna er ég leikmaður Udinese. Þeir hafa eytt miklu í mig svo ég efast um að þeir láti mig fara," sagði Quagliarella.
Hann á að baki þrjá leiki fyrir landslið Ítala og hefur skorað í þeim tvö mörk en þau komu bæði gegn Litháum í 2-0 sigri.

Heimild: BBC