Fotbolti.net
23.06.07 - 17:35
Arnar Geir Halldórsson
Ítalska deildin

Massimo Donati til Celtic (Staðfest)

Donati í leik með Messina í vetur

Donati í leik með Messina í vetur

Canon

Mynd: Getty Images

Massimo Donati er genginn til liðs við skosku meistarana í Celtic en hann kemur frá AC Milan fyrir að því talið er um 3 milljónir punda.
Donati sem er 26 ára miðjumaður skrifaði undir 4 ára samning við félagið og mun gangast undir læknisskoðun í byrjun næstu viku.

Stuðningsmenn Celtic eru í skýjunum með kaupin en þeir hafa góða reynslu af Ítölum en sá seinasti var enginn annar en Paolo Di Canio og var hann í miklum metum hjá stuðningsmönnum þrátt fyrir að hafa aðeins spilað eitt tímabil með þeim grænhvítu.

Þrátt fyrir að Donati hafi verið samningsbundinn AC Milan allt frá 2001 hefur hann aðeins spilað 17 leiki fyrir félagið en hann hefur verið á láni hjá öðrum ítölskum félögum öll hin tímabilin, alls fimm félögum.

Talið er að Palermo, Sampdoria og uppeldisfélagið Atalanta hafi öll verið á eftir kappanum en hann ákvað að velja Celtic að lokum.

Heimild: SportingLife

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.