Fotbolti.net
23.06.08 - 16:37
Guðmundur Dagur Ólafsson

Samir Nasri til Arsenal (Staðfest)

Samir Nasri til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur gengið frá kaupunum á hinum tvítuga miðjumanni Samir Nasri frá Marseille en þetta kemur fram á heimasíðu leikmannsins.
Nasri, sem kom inná sem varamaður í tveimur leikjum á EM 2008 með Frökkum, skrifar undir fjögurra ára samning við félagið og er kaupverðið 15,8m punda. Hann getur spilað bæði á vinstri og hægri kanti.

Hann spilaði sinn fyrsta leik með Marseille fyrir fjórum árum síðan en hann vakti fyrst athygli með franska landsliðinu á Evrópukeppni landsliða 17 ára og yngri árið 2004.

Hann spilaði 30 leiki með félaginu á síðasta tímabili og náði að skora sex mörk. Þá var hann valinn besti ungi leikmaðurinn í frönsku deildinni og leikmaður ársins hjá Marseille.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.