23.06.08 - 17:10
Hafliði Breiðfjörð
Grétar Ólafur Hjartarson í Grindavík (Staðfest)

Grétar með Grindavíkur treyjuna í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Grétar með Grindavíkur treyjuna í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Heldur betur óvænt tíðindi urðu á íslenska félagaskiptamarkaðnum í dag því framherjinn Grétar Ólafur Hjartarson er genginn í raðir Grindavíkur frá KR. Þetta staðfesti Grindavík nú klukkan 17:00 en Grétar gerði þriggja ára samning við félagið eftir að hafa verið leystur undan samningi við KR.
Grétar Ólafur verður 31 árs gamall á árinu. Hann gekk í raðir KR frá Grindavík haustið 2004 og hefur á undanförnum þremur leiktíðum leikið 51 leik með KR í Landsbankadeildinni og skorað í þeim 12 mörk. Hann hóf þessa leiktíð í meiðslum en hafði tvisvar komið inná sem varamaður gegn Fram og Keflavík.
Grétar Ólafur lék síðast með Grindavík í Landsbankadeildinni sumarið 2004. Hann lék þá alla leiki liðsins í deildinni, 18 að tölu, og skoraði í þeim 11 mörk. Í heildina hefur hann leikið 133 leiki í efstu deild hér á landi og skorað í þeim 60 mörk.
Hann hefur leikið með Lilleström í Noregi, Landskrona í Svíþjóð, Stirling í Skotlandi og Reyni Sandgerði þar sem hann er uppalinn auk Grindavíkur og KR.