Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 23. júní 2021 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Vlahovic með þrjú tilboð á borðinu
Dusan Vlahovic fagnar hér með liðsfélögum sínum
Dusan Vlahovic fagnar hér með liðsfélögum sínum
Mynd: EPA
Serbneski framherjinn Dusan Vlahovic er með þrjú tilboð á borðinu frá Atlético Madríd, Milan og Tottenham Hotspur.

Það er Calciomercato sem greinir frá þessu í dag.

Vlahovic er 21 árs gamall og var stórstjarna Fiorentina í ítölsku deildinni á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 21 deildarmark í 37 leikjum.

Samkvæmt Calciomercato hefur Atlético Madríd, Milan og Tottenham boðið honum samning en félögin eiga þó enn eftir að komast að samkomulagi við Fiorentina um kaupverð.

Ítalska félagið vill 60 milljónir evra fyrir þennan stóra og stæðilega framherja.
Athugasemdir
banner
banner
banner