Fotbolti.net
23.06.26 - 20:25
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea nálgast samkomulag um besta varnarmann ítölsku deildarinnar

Chelsea nálgast samkomulag um besta varnarmann ítölsku deildarinnar
Canon

Mynd: EPA

Chelsea er að ganga frá samkomulagi við Atalanta um ítalska varnarmanninn Marco Palestra og má búast við því á næsta sólarhringnum en þetta segir David Ornstein hjá Athletic.
Enska félagið hefur haft mikinn áhuga á Palestra, sem hefur einnig verið sterklega orðaður við Ítalíumeistara Inter.

Palestra, sem er 21 árs gamall, er sagður hafa hallast meira að Chelsea en lítið hafði gerst í viðræðunum þar til í dag.

Samkvæmt Ornstein er Chelsea að ganga frá samkomulagi við Atalanta um þennan fjölhæfa varnarmann. Palestra er fyrst og fremst hægri bakvörður en getur einnig leyst fleiri stöður í varnarlínunni.

Chelsea á eftir að ganga frá kaupum og kjörum við leikmanninn en það er ekki talið verða stór hindrun ef félögin ná saman.

Palestra átti frábært tímabil með Cagliari, þar sem hann var á láni frá Atalanta, og var valinn besti varnarmaður Seríu A á síðustu leiktíð.

Hann er kominn með tvo A-landsleiki fyrir Ítalíu en hann þreytti frumraun sína í mars á þessu ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.