Fotbolti.net
23.06.26 - 12:13
Innkastið

Efasemdaröddum á Hlíðarenda fjölgar - „Nafn Eiðs Smára hvíslað meðal stuðningsmanna“

Hemmi var afar ánægður með frammistöðuna á sunnudag.

Hemmi var afar ánægður með frammistöðuna á sunnudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur gerði 1-1 jafntefli við nýliða Keflavíkur á Hlíðarenda síðastliðinn sunnudag. Valsmenn höfðu tapað síðustu þremur leikjum fyrir leik sunnudagsins og situr liðið í 5. sæti deildarinnar.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, sagði í viðtali eftir leik að frammistaðan hefði verið mjög góð og ein af þeim betri hjá liðinu í sumar.
Hemmi svekktur: Ógnarsterk frammistaða
TENGT EFNI

Hemmi svekktur: Ógnarsterk frammistaða

Í Innkastinu var rætt um viðtal Hermanns og sagt að hann þyrfti að átta sig á því að hann væri að þjálfa Val. „Þegar Valur fær Keflavík í heimsókn þá eiga þeir ekki bara að vera frískir og sprækir gegn Keflavík á heimavelli heldur eiga þeir að vinna þennan leik,“ sagði Elvar Geir Magnússon sem kallaði þetta ákveðið leikrit.

Ef horft er í tölfræði úr leiknum voru Valsmenn meira með boltann (66%). Keflvíkingar áttu þó fleiri skot, alls 17 á móti 13 skotum Valsara. Þá var Xg-tölfræðin nokkuð jöfn: Valur 1,64, Keflavík 1,53.

Efasemdaröddunum fjölgar
Því næst var rætt um samstarf Hermanns og Vals. Elvar sagðist heyra á stuðningsmönnum Vals að efasemdaröddunum hefði fjölgað. Þá segir Elvar að nafn Eiðs Smára hafi komið til umræðu á Hlíðarenda ráðist félagið í þjálfarabreytingar.

„Eiður hefur áður verið orðaður við Valsliðið og á aðdáendur á Hlíðarenda. Það er nafn sem er verið að hvísla meðal stuðningsmanna,“ sagði Elvar og Runólfur Trausti Þórhallsson tók orðið.

„Fyrir mót var mikið rætt um þetta teymi. Ef þeir ætla að breyta til, munu þeir bara láta Hemma fjúka eða láta alla fjúka? Orðræðan frá félaginu hefur verið slík að þetta er teymi frekar en einn maður,“ sagði Runólfur en samstarf Chris Brazell, Hermanns og Gareth Owen hefur verið mikið í umræðunni.

Gerðu 1-1 jafntefli við Keflavík á sunnudag.

Gerðu 1-1 jafntefli við Keflavík á sunnudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eiður var síðast þjálfari FH.

Eiður var síðast þjálfari FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Innkastið - Dalur martraðanna

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.