Hemmi svekktur: Ógnarsterk frammistaða
Auglýsing

Hermanni Hreiðarssyni þótti svekkjandi að liðið hafi ekki verið búið að ganga frá leiknum áður en Keflavík skoraði

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er ógnarsvekktur með bara eitt stig, með úrslitin. En svakalega ánægður með sterka frammistöðu," sagði Hermann Hreiðarsson, þjáfari Vals, eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Keflavík.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 Keflavík
Valur var betra liðið í dag og Hermann var skiljanlega svekktur með úrslitin þó frammistaðan hafi verið öflug.
„Við létum boltann ganga hratt og vorum hugrakkir og sköpuðum okkur fullt af færum. Við vorum öflugir í dag, héldum boltanum vel, strákarnir eiga hrós skilið og í heildina svekkjandi að taka ekki þrjú stig eftir svona frammistöðu.
Það er gríðarlega svekkjandi að refsa ekki betur en þetta fyrir þær stöður sem við komumst í bæði í skyndisóknum og líka áttum við marga frábæra spilkafla, þetta er einn af okkar betri leikjum í sumar. Það er bara engin spurning," sagði Hermann.
Valsarar tóku kraftmikil hlaup á bakvið vörn Keflavíkur. Var það eitthvað sem Hermann lagði sérstaklega upp með?
„Það var góð hreyfing á okkur, þeir ætluðu að pressa okkur en við náðum að leysa það vel og teygja vel á þeim. Þá myndaðist pláss aftan við þá, við nýttum það vel til að komast í stöður en eins og við vitum náðum við ekki að refsa nógu vel fyrir það. "
Jónatan Ingi Jónsson byrjaði sinn fyrsta leik á tímabilinu eftir meiðsli. Það eru gleðifréttir fyrir Valsara en Jónatan Ingi hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar síðustu ár.
„Hann var geggjaður hérna í dag. Við erum augljóslega búnir að sakna hans í sumar en hann er einn af bestu leikmönnunum í deildinni og hann var frábær hér í dag. Ég vil líka hrósa Kristjáni Oddi sem spilaði fyrsta leikinn sinn í byrjunarliðinu, mér fannst hann stórkostlegur í dag," bætti Hermann við að lokum.