Fotbolti.net
23.07.07 - 13:31
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Freddie Ljungberg til West Ham (Staðfest)

Ljungberg hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal

Ljungberg hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur gengið frá kaupunum á sænska landsliðsmanninum Freddie Ljungberg frá Arsenal. Ljungberg kom til Arsenal frá Halmstad í heimalandinu árið 1998 og var hann því í níu ár hjá félaginu.
Þessi 30 ára gamli miðjumaður gekk frá kaupum og kjörum við Eggert Magnússon í dag eftir að hann stóðst læknisskoðun á Upton Park.

Ljungberg var mikið meiddur á síðasta tímabili og ákváðu Arsenal að láta hann fara þar sem þeir gátu ekki lofað honum byrjunarliðssæti í liði Arsene Wenger.

Þetta eru fimmtu kaup West Ham í sumar og mun hann styrkja miðju liðsins eftir brottför Yossi Benayoun til Liverpool og alvarleg meiðsli Julien Faubert.

Ljungberg spilaði meira en 300 leiki fyrir Arsenal og skoraði á þeim tíma meira en 70 mörk.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.