Höskuldur um nám erlendis: Ekkert staðfest
Auglýsing


Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski


Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
\"Þetta var karakter sigur\" sagði Höskuldur Gunnlaugsson eftir frábæran 4-2 sigur á KA á Akureyrarvelli í kvöld. Höskuldur fór á kostum í leiknum og lagði upp öll mörk gestanna.
Framtíð Höskuldar hefur verið á milli tannana á fólki undanfarið. Í viðtali við fjölmiðla eftir leik var Höskuldur spurður út í nám erlendis. \"Það er ekkert staðfest í þessu\" sagði Höskuldur.
Framtíð Höskuldar hefur verið á milli tannana á fólki undanfarið. Í viðtali við fjölmiðla eftir leik var Höskuldur spurður út í nám erlendis. \"Það er ekkert staðfest í þessu\" sagði Höskuldur.
\"Ég er mjög sáttur við minn leik og hjá öllu liðinu bara. Karaktersigur hjá okkur. Við komum út í hálfleik einu marki undir, og vorum alveg sáttir með okkar spilamennsku í fyrri hálfleik þannig að við vorum ekkert að stressa okkur og ákváðum að vera aðeins skilvirkari á síðasta þriðjunginum hjá þeim og nýta færin sem við svo gerðum.\"






