Fotbolti.net
23.08.05 - 14:06
Hafliði Breiðfjörð

Milan Baros til Aston Villa (Staðfest)

Milan Baros til Aston Villa (Staðfest)
Canon
Aston Villa hafa gengið frá kaupum og samningum á Milan Baros framherja Liverpool en kaupverðið er 6,5 milljónir punda. Baros skrifaði undir fjögurra ára samning við Villa í dag eftir að hafa undirgengist læknisskoðun hjá félaginu.
Baros var markahæsti leikmaður EM 2004 með fimm mörk og markahæsti leikmaður Liverpool á síðustu leiktíð. Hann var hinsvegar búinn að færast niður goggunarröðina á Anfield eftir Djibril Cisse, Fernando Morientes og Peter Crouch.

Hann hafði aðeins þrisvar komist á varamannebekkinn hjá Liverpool á leiktíðinni og ljóst var að hann yrði seldur.

,,Ég er hæstánægður með að hafa fengið loksins okkar mann. Hann mun gefa okkur neistann sem okkur vantar frammi," sagði David O´Leary stjóri Vila á vefsíðu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.