23.08.05 - 17:29
Hafliði Breiðfjörð
Hugo Viana til Valencia (Staðfest)

Valencia hafa gengið frá lánssamningi á Portúgalanum Hugo Viana frá Newcastle United en hann verður hjá spænska félaginu út næstu leiktíð. Viana sem er 22 ára gamall var á láni hjá Sporting Lisabon í heimalandi sínu á síðustu leiktíð en hann mun leysa stöðu Brasilíumannsins Edu hjá Valencia en Edu sleit krossbönd á æfingu og verður lengi frá.
Valencia tilkynntu í dag að þeir ættu svo möguleika á að kaupa leikmanninn í lok leiktíðarinnar. Viana var keyptur til Newcastle af Bobby Robson frá Sporting Lisabon í júlí árið 2002 en kaupverðið var 8,5 milljónir punda. Þá var Viana talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu.
Honum gekk hinsvegar illa að aðlagast í englandi og var lánaður til baka í byrjun síðustu leiktíðar. Hann hafði verið orðaður við Deportivo La Coruna sem hluti skiptidíls með Albert Luque en ekkert varð af því.