Fotbolti.net
23.08.07 - 10:17
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Cicinho til Roma (Staðfest)

Cicinho til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Roma hefur gengið frá kaupunum á hægri bakverðinum Cicinho frá Real Madrid en kaupverðið er um það bil sex milljónir punda.
Cicinho hefur skrifað undir fimm ára samning hjá Roma sem mun færa honum 1,5 milljónir punda í aðra hönd.

Cicinho sem er 27 ára kom til Real Madrid í desember en hann hefur færst aftar í goggunarröðinni hjá Spánarmeisturunum eftir að Þjóðverjinn Bernd Schuster tók við stjórnartaumunum hjá félaginu í sumar.

Schuster hefur verið að nota þá Sergio Ramos og Michel Salgado í hægri bakverðinum hjá Madrid og ákvað hann því að leyfa Cicinho að fara.

Roma hefur leik í Serie A um helgina þegar að liðið mætir Palermo á sunnnudag en óvíst er hvort að Cicinho fái leikheimild í tæka tíð fyrir þann leik.

Heimild: Channel 4

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.