23.08.07 - 17:18
Magnús Már Einarsson
Belletti til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur keypt hægri bakvörðinn Juliano Belletti frá Barcelona fyrir óuppgefna upphæð. Þessi 31 árs Brasilíumaður hefur staðist læknisskoðun hjá Chelsea og gert þriggja ára samning við félagið.
,,Þessi félagaskipti komu óvænt upp. Ég talaði einungis fyrst við Chelesa á miðvikudaginn. Við náðum samkomulagi og einnig Chelsea og Barca án nokkurra vandræðna," sagði Belletti við heimasíðu Chelsea.
Belletti sem skoraði sigurmark Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2006 féll niður goggunarröðina hjá liðinu á síðustu leiktíð og lék einungis þrettán leiki.
Jose Mourinho stjóri Chelsea hefur verið í leit að hægri bakverði og hefur hann reynt að fá Dani Alves frá Sevilla og er talið að hann hafi meðal annars boðið 20 milljónir punda í hann.
Nú hefur Mourinho hins vegar krækt í Belletti sem mun berjast við Glen Johnson og Paolo Ferreira um hægri bakvarðarstöðuna.

Heimild: BBC