Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fös 23. ágúst 2024 17:00
Elvar Geir Magnússon
Íslandsvinurinn Begovic aftur í Everton (Staðfest)
Mynd: EPA
Íslandsvinurinn Asmir Begovic hefur gert samning við Everton út tímabilið. Honum er ætlað að vera varamarkvörður fyrir Jordan Pickford.

Begovic heimsótti Ísland fyrr á árinu og hélt markvarðanámskeið í Úlfarsárdal.

Hann er 37 ára landsliðsmaður Bosníu og Hersegóvínu en á síðasta tímabili var hann aðalmarkvörður Queens Park Rangers í Championship-deildinni.

Begovic var áður hjá Everton 2021-23 en hann er fyrrum markvörður Portsmouth, Stoke, Chelsea, Bournemouth og AC Milan.

„Ég hef átt frábært samband með fólkinu hjá Everton, þetta félag er svo sérstakt, magnaður stuðningsmannahópur. Ég hlakka til að vinna með markvörðunum hérna aftur. Jordan er góður vinur minn og ég ber mikla virðingu fyrir honum," segir Begovic.
Athugasemdir
banner
banner