Fotbolti.net
23.09.21 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Ísland í dag - Grótta mætir ÍBV í lokaumferðinni

Ísland í dag - Grótta mætir ÍBV í lokaumferðinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Það er aðeins einn leikur á dagskrá í íslenska boltanum í dag þar sem Grótta tekur á móti ÍBV á Seltjarnarnesi. Þetta er síðasti leikur beggja liða á tímabilinu.
Liðin mætast í Lengjudeild karla og er viðureignin þýðingarlaus í ljósi þess að Eyjamenn eru nú þegar búnir að tryggja sér sæti í efstu deild á næsta ári.

ÍBV er í öðru sæti Lengjudeildarinnar með 44 stig eftir 21 umferð, tveimur stigum fyrir ofan Fjölni sem hefur lokið öllum sínum leikjum á tímabilinu.

Grótta situr í fimmta sæti, þremur stigum eftir Kórdrengjum.

Lengjudeild karla
17:30 Grótta-ÍBV (Vivaldivöllurinn)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.