Fotbolti.net
23.09.26 - 17:04
Elvar Geir Magnússon

Aron Snær og Siggi Lár búnir að framlengja við Þrótt (Staðfest)

Aron Snær og Sigurður Egill.

Aron Snær og Sigurður Egill.

Canon

Mynd: Þróttur

Stuðningsmenn Þróttar geta haldið áfram að gleðjast en lykilmennirnir Aron Snær Ingason og Sigurður Egill Lárusson hafa framlengt samninga sína við félagið.

Þróttur tryggði sér sæti í Bestu deildinni með því að vinna Fylki verðskuldað 1-0 í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar síðasta laugardag.

Aron og Sigurður voru báðir í liði ársins í deildinni en sá síðarnefndi var valinn leikmaður tímabilsins af Fótbolta.net.

„Þetta var aldrei spurning," er haft eftir Sigurvin Ólafssyni þjálfara Þróttar á samfélagsmiðlum félagsins.

Aron Snær er 24 ára sóknarleikmaður sem var sterklega orðaður við Val en ákvað að taka slaginn áfram með Þrótti. Hann átti frábært tímabil og skoraði sigurmarkið gegn Fylki.

„Hann á það svo sannarlega skilið. Ég vona bara að hann verði áfram hjá okkur í Þrótti. Mér finnst það alveg galið eiginlega ef hann fer eitthvað annað. Hann á að vera aðalmaðurinn hjá okkur næsta sumar, mér finnst það ekki spurning. Ég skil það samt vel að það sé verið að bera víurnar í hann," sagði Sigurður Egill um Aron Snæ í viðtali við Fótbolta.net í vikunni.

Sigurður Egill er 34 ára og lék sem vængbakvörður hjá Þrótti í sumar eftir að hafa komið frá Val. Þessi reynslumikli sigurvegari á stóran þátt í því að liðið náði markmiði sínu.
Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegi
TENGT EFNI

Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegi

Sjáðu það helsta þegar Aron Snær skaut Þrótti upp í Bestu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.