Fotbolti.net
23.09.26 - 12:13
Innkastið

Siggi Lár: Hann er einn af þeim bestu sem ég hef verið með

Þróttarar fagna sigrinum og sætinu í Bestu deildinni.

Þróttarar fagna sigrinum og sætinu í Bestu deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Sigurður Egill Lárusson var valinn leikmaður ársins í Lengjudeildinni en hann hjálpaði Þrótti að vinna sér inn sæti í Bestu deildinni. Hann mætti sem gestur í Innkastið í vikunni.

Þrótti vantaði upp á reynslu í fyrra en þar kom þessi 34 ára sigurvegari, sem kom frá Val fyrir tímabilið, með ansi mikið að borðinu og er leikmaður ársins.
Lið ársins og bestu menn í Lengjudeildinni 2026
TENGT EFNI

Lið ársins og bestu menn í Lengjudeildinni 2026

„Þetta var ótrúlega skemmtilegt tímabil og hollt fyrir mig að prófa eitthvað nýtt. Ég var búinn að vera hjá Val í þrettán ár. Þegar ég kom fyrst niður í Þrótt átti ég eins og hálfs tíma spjall við Venna (Sigurvin Ólafsson þjálfara). Þeir höfðu verið grátlega nálægt því tímabilið á undan að fara upp og Venni sagði við mig að ég væri púslið sem vantaði til að ýta þessu yfir línuna, með mína sigurhefð og reynslu," segir Sigurður Egill.

Mannleg samskipti upp á tíu
Hann ber þjálfaranum, Sigurvin Ólafssyni, ansi vel söguna.

„Hann er algjörlega frábær. Ég hef haft marga frábæra þjálfara í gegnum tíðina. Hann er einn af þeim bestu sem ég hef verið með, sérstaklega fyrir mig sjálfan. Hann hentar mér mjög vel, mannleg samskipti eru upp á tíu hjá honum. Hann er heiðarlegur, sanngjarn og hvetjandi. Hann treystir leikmönnum og er klár, ótrúlega góður þjálfari sem hefur reynst mér frábærlega," segir Sigurður Egill.

„Hann vill gera þetta almennilega og var alltaf að fá punkta hjá mér hvað væri hægt að gera betur hjá Þrótti, þar sem ég var að koma úr Val og úr betra umhverfi en hafði verið hjá Þrótti. Honum er umhugað um hvað Þróttur geti gert betur til að komast á hærri stall."

Allar líkur á að ég verði áfram
Þróttur vann verðskuldaðan 1-0 sigur gegn Fylki í úrslitaleik á Laugardalsvelli og braust út mikill fögnuður enda Þróttarar komnir meðal þeirra bestu í fyrsta sinn í tíu ár.

„Tilfinningin eftir leik var öðruvísi en ég er vanur. Ég var aðallega ánægður fyrir hönd uppöldu leikmannana og fólksins í kringum félagið. Ég fann hvað þetta skipti stuðningsmennina miklu máli og ég var glaður fyrir þeirra hönd," segir Sigurður Egill.

Eins og fjallað var um í vikunni er ekki frágengið að hann verði áfram í Þrótti. En hvernig er staðan nákvæmlega?

„Ég gerði þennan 1+1 samning og ætlaði að taka stöðuna. Mótið var bara að klárast og ég ætla að gefa mér þessa viku en mér finnst allar líkur á því að ég verði áfram hjá Þrótti. Þetta var það skemmtilegt verkefni," svarar hann.

Galið ef hann fer annað
Í spjallinu ræddi Sigurður Egill einnig um samherja sinn, Aron Snæ Ingason sem skoraði sigurmarkið gegn Fylki. Aron var frábær í sumar og var valinn í lið ársins.

„Hann á það svo sannarlega skilið. Ég vona bara að hann verði áfram hjá okkur í Þrótti. Mér finnst það alveg galið eiginlega ef hann fer eitthvað annað. Hann á að vera aðalmaðurinn hjá okkur næsta sumar, mér finnst það ekki spurning. Ég skil það samt vel að það sé verið að bera víurnar í hann," segir Sigurður Egill en Aron hefur verið sterklega orðaður við Val sem vill fá hann á Hlíðarenda,
Sigurvin Ólafsson fagnar á Laugardalsvelli.

Sigurvin Ólafsson fagnar á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sigurður Egill, til hægri, með bikarinn geggjaða.

Sigurður Egill, til hægri, með bikarinn geggjaða.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Snær Ingason skoraði markið dýrmæta. 100 milljóna króna mark!

Aron Snær Ingason skoraði markið dýrmæta. 100 milljóna króna mark!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegi

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.