Fotbolti.net
23.10.05 - 23:50
Hafliði Breiðfjörð

Björgólfur Takefusa til KR (Staðfest)

Björgólfur í leik með Fylki gegn KR í sumar

Björgólfur í leik með Fylki gegn KR í sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Björgólfur Takefusa hefur gert tveggja ára samning við KR um að leika með félaginu. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem KR sendi frá sér nú undir miðnætti. Í tilkynningunni segir að KR vænti mikils af Björgólfi sem hefur verið einn marksæknasti sóknarmaður landsins undanfarin ár.
Björgólfur Takefusa gerði á föstudag samkomulag við Fylki um að slíta samstarfi sínu við félagið þrátt fyrir að hafa gert í janúar árið 2004 þriggja ára samning við Fylki. Sá samningur var hinsvegar aldrei lagður inn hjá KSÍ þar sem Björgólfur mátti ekki semja við félag vegna náms síns í Bandaríkjunum.

Hann mun hinsvegar ljúka námi sínu þar ytra um áramót og mun því geta tekið fullan þátt í undirbúningstímabilinu með KR. Þá fer hann ekki utan aftur næsta haust og því getur hann leikið til enda tímabilsins.

Björgólfur sem er 25 ára gamall hóf feril sinn hjá Þrótti og lék fyrst í efstu deild með þeim sumarið 2003 og vakti mikla athygli. Hann skoraði sex mörk í fimmtán leikjum fyrir Fylki í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.