Fotbolti.net
23.10.06 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Sif Atladóttir í Val (Staðfest)

Sif ásamt Ótthari Edvardssyni aðstoðar framkvæmdastjóra Vals.

Sif ásamt Ótthari Edvardssyni aðstoðar framkvæmdastjóra Vals.

Canon

Mynd: Valur.is

Sif Atladótir gekk nú fyrir helgi til liðs við Íslands- og bikarmeistara Vals og gerði þriggja ára samning við félagið. Sif sem er dóttir Atla Eðvaldssonar fyrrum landsliðsþjálfara Íslands kemur frá Þrótti þar sem hún spilaði síðasta sumar.
Áður hafði hún einnig leikið með KR og FH. Hún var í U-21 árs liði Íslands í sumar þar sem hún lék sem náð frábærum árangri á Norðurlandamótinu og þar var hún í lykilhlutverki.

Sif er ætlað að leysa framherja stöðuna hjá Val en markaskorari liðsins frá síðustu leiktíð, Margrét Lára Viðarsdóttir, er farin í atvinnumennsku til Þýskalands.

Sif lék 14 leiki með Þrótti í 1. deild kvenna í sumar og skoraði í þeim 12 mörk. Hún hóf feril sinn í Meistaraflokki hjá FH þar sem hún skoraði 6 mörk í 22 leikjum árin 2001-2003. 2004 lék hún með KR og skoraði þar átta mörk í 16 leikjum en 2005 lék hún með FH, skoraði þar 6 mörk í 15 leikjum.

Hún á að baki fjóra leiki með U21 árs landsliði Íslands, alla á þessu ári, og í þeim skoraði hún eitt mark. 2003 og 2004 lék hún 6 leiki með U19 ára landsliðinu og skoraði eitt mark.

Heimild: Valur.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.