Fotbolti.net
23.10.20 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Pickford reyndi að hafa samband við Van Dijk

Jordan Pickford.

Jordan Pickford.

Canon

Mynd: Getty Images

Jordan Pickford, markmaður Everton, reyndi að hafa samband við Virgil van Dijk, varnarmann Liverpool, eftir að hafa slasað hann í leik liðanna um síðustu helgi.
„Ég veit að hann ræddi við Jordan Henderson eftir leikinn en ég veit ekki hvort hann hafi náð sambandi við Van Dijk eftir á." sagði Carlo Ancelotti, stjóri Everton.

„Ég veit að hann reyndi að ná sambandi en ég veit ekki hvort hann náði að tala við hann."

Pickford hefur fengið send ljót skilaboð á samfélgasmiðlum eftir meiðsli Van Dijk en Ancleotti ætlar ekki að taka hann úr liðinu um helgina.

„Ég, ég er ekki að íhuga að taka hann út. Hann æfir vel og er einbeittur á leikinn eins og liðsfélagar hans. Ég held að hann spili á sunnudaginn," sagði Ancelotti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.