Úrvalslið ársins í Bestu deildinni 2026

Aron Sigurðarson og Gylfi Þór Sigurðsson berjast um boltann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull Andrésson ver markið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kennie Chopart.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Vatnhamar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Finnur Tómas Pálmason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Hafsteinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi Traustason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Hrafn Haraldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Borgþórsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Sigurðarson og Gylfi Þór Sigurðsson berjast um boltann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í Innkastinu var sérstakt uppgjör og tilkynnt hver er leikmaður ársins, þjálfari ársins, efnilegasti leikmaðurinn og dómari ársins.

Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla

Jökull Andrésson - FH
Eftir að hafa fallið með Aftureldingu í fyrra náði Jökull að sýna sínar bestu hliðar með FH, átti margar magnaðar vörslur á mikilvægum tímapunktum og lét vel í sér heyra. Þagnaði í raun aldrei. Einn af tveimur leikmönnum úr neðri hlutanum sem kemst í lið ársins.
Ver að meðaltali 3,4 skot í leik og hefur haldið fimm sinnum hreinu á tímabilinu.
Kennie Chopart - Fram
Aldur er bara tala og það sýndi Kennie Chopart, 36 ára, svo sannarlega. Fyrirliði Fram átti algjörlega magnað tímabil og var út um allan völl. Sannur leiðtogi sem lagði sitt á vogarskálarnar sóknarlega.
Daninn er markahæsti leikmaður Framara með tíu mörk. Hann hefur áður mest skorað sjö mörk í deildarkeppni.
Finnur Tómas Pálmason - KR
Fékk gagnrýni í fyrra en hefur svarað því með frábærri frammistöðu og stöðugleika í sumar. Er búinn sýna mikla yfirvegun og sjálfstraust í öftustu línu Vesturbæjarliðsins. Var síðast í liði ársins 2019, þegar hann var 18 ára.
Kemst á milli sendingar andstæðingsins að meðaltali sex sinnum í leik og vinnur rúmlega 60% návíga.
Gunnar Vatnhamar - Víkingur
Spilaði á Íslandi í fjögur tímabil og í öll tímabilin var hann valinn í lið ársins. Það segir það sem segja þarf. Hann var átta sinnum í liði umferðarinnar þetta tímabilið og hjálpaði Víkingi að innsigla Íslandsmeistaratitilinn áður en hann hélt til Vejle í Danmörku.
Víkingar töpuðu engum deildarleik á tímabilinu þegar Gunnar var í byrjunarliðinu.
Helgi Guðjónsson - Víkingur
Annað árið í röð sem Helgi er valinn í lið ársins. Er að aðlagast og verða betri og betri í nýju hlutverki. Nýtur sín vel í liði Íslandsmeistaranna.
Skoraði níu mörk og lagði upp sex úr vinstri bakverði.
Arnór Ingvi Traustason - KR
Það eru ýmsar ástæður fyrir gjörbreyttu gengi KR frá síðasta tímabili en ein af lykilástæðunum er innkoma Arnórs Ingva sem hefur verið algjört akkeri í liði KR-inga.
Það hefur sömuleiðis farið mikið fyrir Arnóri í markaskorun en hann skorar að meðaltali 0,52 mörk á hverjum 90 mínútum spiluðum.
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur
Hvað er ekki búið að segja um Gylfa? Algjörlega stórkostlegur á tímabilinu og sýnir gæði sem eiga bara hreinlega ekki að sjást í þessari deild. Í liði ársins þriðja árið í röð.
Skorað níu mörk í deildinni í ár samanborið við sex í fyrra.
Daníel Hafsteinsson - Víkingur
Hann og Gylfi ná nánast fullkomlega saman á miðjunni. Daníel var í liði ársins í fyrra og eitt fyrsta nafn á blaði í ár.
Skapar að meðaltali tvö færi í leik og er með 88% sendingahlutfall.
Óskar Borgþórsson - Víkingur
Lék á als oddi með Víkingsliðinu áður en hann ökklabrotnaði í Evrópuleik. Þrátt fyrir að missa út nokkuð stóran hluta var Óskar það öflugur með mörk, stoðsendingar og hátt skemmtanagildi að hann er í liði ársins.
Kom að 17 mörkum í 15 leikjum og átti að meðaltali 5,27 framsækin hlaup (e. progressive runs) í hverjum leik.
Aron Sigurðarson - KR
Tölurnar tala sínu máli. Fyrirliði KR hefur átt stórkostlegt tímabil í stórskemmtilegu liði KR. Kemur með mörk og stoðsendingar á færibandi. Var á bekknum í liði ársins í fyrra en á öruggt byrjunarliðssæti í ár.
Fyrstur til að skora 20 mörk í venjulegu 22 leikja móti. Alls hefur Aron komið að 31 marki með beinum hætti.
Tryggvi Hrafn Haraldsson - Valur
Skilur eftir sig skarð sem verður hægara sagt en gert að fylla á Hlíðarenda. Tryggvi sló stoðsendingamet efstu deildar íslenska boltans með þremur stoðsendingum í flottum sigri Vals gegn KA. Tryggvi Hrafn er þar með kominn með 15 stoðsendingar í Bestu deildinni í sumar og 10 mörk.
Hann bætir gamla stoðsendingametið um tvær stoðsendingar en fimm mismunandi leikmenn hafa náð 13 stoðsendingum á einu tímabili í efstu deild.
Varamannabekkur:
Ásgeir Orri Magnússon - Keflavík
Karl Friðleifur Gunnarsson - Víkingur
Oliver Ekroth - Víkingur
Hrafn Tómasson - KR
Freyr Sigurðsson - Fram
Amin Cosic/Galdur Guðmundsdon - KR
Markús Páll Ellertsson - ÍA
Stefan Ljubicic - Keflavík
Sjá einnig:
Lið ársins 2025
Lið ársins 2024
Lið ársins 2023
Lið ársins 2022
Lið ársins 2021
Lið ársins 2020
Lið ársins 2019
Lið ársins 2018
Lið ársins 2017
Lið ársins 2016
Lið ársins 2015
Lið ársins 2014
Lið ársins 2013
Lið ársins 2012
Lið ársins 2011

Jökull Andrésson ver markið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kennie Chopart.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Vatnhamar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Finnur Tómas Pálmason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Hafsteinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi Traustason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Hrafn Haraldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Borgþórsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
