23.10.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sancho fær gríðarlega launalækkun

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænska félagið Getafe hefur formlega boðið Jadon Sancho samning en hann mun þéna margfallt minna en hann gerði hjá Man Utd. Þessi 26 ára gamli enski vængmaður yfirgaf Man Utd í sumar eftir að samningur hans við félagið rann út.
The Telegraph hefur Getafe boðið honum tíu þúsund pund á viku en hann er sagður hafa þénað um 250 þúsund pund á viku hjá Man Utd.
Hann er sagður spenntur fyrir því að spila á Spáni til að fá tækifæri til að sanna sig á ný en vill hitta José Bordalás, stjóra Getafe, áður en hann tekur endanlega ákvörðun.
Sancho gekk til liðs við Man Utd frá Dortmund fyrir 73 milljónir punda. Hann náði ekki að standa undir væntingum og hefur verið á láni hjá Dortmund og Chelsea. Þá var hann á láni hjá Aston Villa á síðustu leiktíð.
Getafe er í 15. sæti spænsku deildarinnar með níu stig eftir níu umferðir. Dani Carvajal, fyrrum leikmaður Real Madrid, gekk til liðs við félagið fyrr í þessum mánuði.