23.10.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon
Kahn varar Nagelsmann við því að taka við Man Utd

Julian Nagelsmann er fyrrum landsliðsþjálfari Þýskalands og fyrrum stjóri Bayern München.

Mynd: EPA

Það er stundum talað um Manchester United sem grafreit en hverjum stjóranum á fætur öðrum hefur mistekist að ná tilætluðum árangri síðan Sir Alex Ferguson sagði þetta gott 2013.
Michael Carrick er í sjóðheitu sæti en Julian Nagelsmann hefur verið hvað mest í umræðunni varðandi næsta stjóra á Old Trafford. Nagelsmann lét af störfum sem þjálfari Þýskalands í sumar.
Þýska goðsögnin Oliver Kahn, sem var magnaður markvörður á sínum tíma, varar Nagelsmann við því að taka við United.

„Frá hans sjónarhóli er þetta ekki auðveld staða. Hann er ekki með reynslu af erlendum félagsliðum. Það hefur ekki verið stöðugleiki í stjóramálum í ensku úrvalsdeildinni og hjá Manchester United," segir Kahn.
„Hann þarf að spyrja sjálfan sig: Hvert er mitt næsta skref? Er ég að stíga inn í eitthvað sem felur í sér gríðarlega áhættu? Allir stjórar undanfarinna ára hafa mistekist. Maður þarf að vanda valið."
„Ég tel að Julian sé maður sem getur byggt upp félag og lið og fært það á hærra stig. Hvort Manchester United sé rétta skrefið í því samhengi er eitthvað sem hann sjálfur þarf að ákveða.“