Fotbolti.net
23.10.26 - 18:00
Auglýsingar

Uppboð hjá Víkingi og KR í lokaumferðinni

Uppboð hjá Víkingi og KR í lokaumferðinni
Canon

Mynd: Gameday

Lokaumferð Bestu deildar karla fer fram á morgun, laugardag, og það verður ekki aðeins barist inni á vellinum. Bæði Víkingur og KR standa fyrir uppboðum í tengslum við síðasta leik tímabilsins.
Víkingur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með nokkrum yfirburðum og lýkur tímabilinu á morgun. Í tengslum við leikinn verður haldið góðgerðaruppboð til styrktar Ingvari Jónssyni, markverði liðsins, sem glímir við krabbamein. Allur ágóði af uppboðinu rennur beint til Ingvars.

Ingvar hefur staðið í marki Víkings frá árinu 2020, þegar hann kom heim frá Viborg í Danmörku. Hann hefur verið hluti af einu sigursælasta skeiði í sögu félagsins og varð 37 ára á sunnudaginn.

Boðin verða upp keppnissett allra leikmanna sem spila lokaleikinn, treyja, buxur og sokkar. Uppboðið opnar klukkan 12:00 á laugardag og lokar klukkan 18:00 á sunnudag, 25. október.

Uppboðið má finna á vikingur.mcrwl.auction.

KR hefur þegar tryggt sér annað sætið í deildinni og þar með Evrópusæti. Vesturbæingar kveðja tímabilið með happdrætti og uppboði undir yfirskriftinni „Öll fyrir KR“. Allur ágóði rennur til áframhaldandi uppbyggingar Knattspyrnudeildar KR.

Uppboðið opnar klukkan 11:00 á laugardag og lokar klukkan 21:00 um kvöldið. Þar verður meðal annars boðið upp á fyrirliðaband og skó Arons Sigurðarsonar, fyrirliða liðsins, og Evrópuferð með KR. Þetta er allt sem fer undir hamarinn:

- Áritaður bolti úr bikarúrslitunum 1994
- Fyrirliðaband Arons Sigurðarsonar frá tímabilinu 2026, áritað
- Skór Arons Sigurðarsonar frá tímabilinu 2026, áritaðir
- Evrópuferð með KR fyrir tvo í Sambandsdeild UEFA 2027
- Treyja Galdurs Guðmundssonar (#45) úr lokaumferðinni 2026
- Treyja Finns Tómasar Pálmasonar (#7) úr lokaumferðinni 2026
- Treyja Hrafns Tómassonar (#26) úr lokaumferðinni 2026
- Tveir Gullmiðar KR, VIP á alla heimaleiki í Bestu deild karla og kvenna 2027

Happdrættið opnar klukkan 18:00 í kvöld, föstudag. Í vinning eru tvær nýjar KR-treyjur fyrir 2027 og þrír Gullmiðar KR.

Hægt er að taka þátt á kr.mcrwl.auction

Stuðningsmenn geta boðið í munina, hvort sem þeir eru á vellinum eða heima í stofu.

Uppboðin eru í umsjá Gameday, sem íslenska sprotafyrirtækið Microwhale stendur að baki.
Uppboð hjá Víkingi og KR í lokaumferðinni
Canon

Mynd: Gameday

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.