Fotbolti.net
23.10.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Alli Jói áfram með Þór/KA

Alli Jói áfram með Þór/KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, Alli Jói, þjálfari Þórs/KA, hefur verið orðaður við endurkomu til Völsungs hvar hann starfaði áður en hann samdi við Þór/KA síðasta haust.

Alli Jói staðfestir við Fótbolta.net að uppeldisfélagið hefði sett sig í samband en það hafi ekki farið lengra en það. Hann verði áfram þjálfari Þórs/KA.

Þór/KA bjargaði sér frá falli í lokaumfeðinni með sigri á Víkingi. Liðið byrjaði mótið illa, vann ekki sinn fyrsta leik fyrr en í níundu umferð, en fór svo á mjög gott skrið.

Einungis eitt stig úr síðustu þremur leikjunum fyrir skiptingu deildarinnar varð til þess að Þór/KA missti af sæti í efri hluta deildarinnar og var liðið á botninum fyrir síðustu þrjá leikina. Sex stig fengust úr þeim og sætinu í deildinni bjargað.

Liðið ætlar sér stærri hluti á næsta tímabili.
Ljóst er að Jóhann Hilmar Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari liðsins, verður ekki áfram hjá Þór/KA.

Völsungur er í þjálfaraleit eftir að Borja Martin Iglesias, þjálfari ársins í Lengjudeildinni, ákvað að halda ekki áfram sem þjálfari liðsins.
Alli Jói áfram með Þór/KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.