23.10.26 - 15:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Matti Villa nýr aðstoðarþjálfari Víkings (Staðfest)
Mesti sigurvegari í sögu íslenskrar knattspyrnu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matthías kemur inn fyrir Viktor Bjarka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Matthías Vilhjálmsson hefur skrifað undir samning við Víking og verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla næstu tvö tímabilin. Hann tekur við starfinu af Viktori Bjarka Arnarssyni sem mun yfirgefa félagið eftir lokaleik tímabilsins á morgun.
Í núverandi þjálfarateymi er Sölvi Geir Ottesen aðalþjálfari og þeir Viktor Bjarki og Aron Baldvin Þórðarson honum til aðstoðar.
Samhliða því að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla verður Matti þjálfari 2. flokks karla.

TENGT EFNI
Viktor Bjarki hættir hjá Víkingi (Staðfest)
Úr tilkynningu Víkings
Matthías varð þrisvar Íslandsmeistari með FH og lék síðan í Noregi með Start, Rosenborg og Vålerenga. Með Rosenborg vann hann fjóra Noregsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. Hann lék 16 A-landsleiki fyrir Ísland og skoraði tvö mörk.
Matthías kom til Víkings árið 2023 og varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu það ár. Hann varð aftur Íslandsmeistari 2025 áður en hann lagði skóna á hilluna. Síðasta árið hefur hann þjálfað 2. og 3. flokk karla hjá félaginu.
Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála:
„Viktor skilur eftir sig stórt skarð í þjálfarateyminu en við erum sannfærð um að Matti fyllir það. Matti er mesti sigurvegari í sögu íslenskrar knattspyrnu og hefur að meðaltali unnið um einn titil á ári á ferlinum. Það er eiginleiki sem við elskum í Víkingi. Við þekkjum hann vel og berum miklar væntingar til hans í nýju hlutverki.“
Velkominn í nýtt hlutverk, Matti