Fotbolti.net
23.11.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ian Holloway tekur við Leicester (Staðfest)

Ian Holloway tekur við Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester, sem situr í 17.sæti í ensku Championship deildinni, hefur ráðið Ian Holloway sem stjóra en hann hætti með lið Plymouth á miðvikudaginn.
Þessi 44 ára gamli stjóri hefur einnig stýrt Bristol Rovers og QPR en hann gerði þriggja og hálfs árs samning við Leicester.

Holloway er þekktur fyrir að svara fjölmiðlum á skemmtilegan hátt en hann er fjórði stjóri Leicester á árinu því að Rob Kelly, Martin Allen og Gary Megson hafa allir stýrt liðinu um tíma.

,,Ég taldi mig ekki geta hafnað þessu. Ég get ekki beðið eftir að byrja," sagði Holloway en hann hafði verið hjá Plymouth frá árinu 2006 áður en hann hætti með liðið fyrr í vikunni til að taka við þessu nýja starfi.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.