Carlo Ancelotti, stjóri Everton, segist vera hissa á því hversu mikinn stöðugleika Dominic Calvert-Lewin hefur sýnt hjá Everton á þessu tímabili.
Calvert-Lewin skoraði tvívegis í 3-2 sigrinum gegn Fulham í gær en hann er nú kominn með tíu mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Calvert-Lewin skoraði tvívegis í 3-2 sigrinum gegn Fulham í gær en hann er nú kominn með tíu mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
„Í augnablikinu er hann mjög einbeittur inn í vítateig," sagði Ancelotti.
„Hann er tilbúinn í allar fyrirgjafir sem koma inn á teiginn."
„Hann er að standa sig mjög vel. Í hreinskilni bjóst ég ekki við þessum stöðugleika hjá honum á þessum tímapunkti."
Athugasemdir