Fotbolti.net
23.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

HM 2035 verður haldið á Bretlandseyjum

HM 2035 verður haldið á Bretlandseyjum
Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
BBC er meðal fjölmiðla sem greina frá því að FIFA mun staðfesta í dag að HM kvenna 2035 verður haldið á Bretlandseyjum.
Þetta verður fyrsta heimsmeistaramótið í fótbolta sem er haldið í Bretlandi síðan Englendingar urðu heimsmeistarar karla á heimavelli 1966.

England, Skotland, Wales og Norður-Írland munu hýsa mótið í sameiningu í ljósi þess að engar aðrar þjóðir buðust til þess.

48 landslið munu í heildina spila 104 leiki yfir 39 daga tímabil þegar heimsmeistaramótið verður haldið eftir níu ár.

Keppt verður á fjórtán völlum sem eru staðsettir á Englandi, tveimur í Wales, tveimur í Skotlandi og einum á Norður-Írlandi.

England hélt síðast stórmót 2022 þegar kvennalandsliðið varð Evrópumeistari, aðeins einu ári eftir að karlalandsliðið tapaði úrslitaleik EM gegn Ítalíu eftir vítaspyrnukeppni á Wembley á 'EM alls staðar' mótinu í miðjum COVID faraldri.

Þess má geta að næsta Evrópumót karla (2028) verður haldið á Bretlandseyjum, nema að Írland tekur þátt í að hýsa mótið í stað Norður-Írlands.
HM 2035 verður haldið á Bretlandseyjum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.