23.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Stuðningsmenn Djurgården fögnuðu með andstæðingunum

Mynd: Google

Mynd: EPA

Mynd: Google
Það var mjög sérstök stemning þegar Djurgården heimsótti Sirius í toppbaráttu sænska boltans í gær.

TENGT EFNI
Vonar að vinur sinn vinni deildina - „Svekkjandi að Róbert hafi meiðst"
Djurgården fékk dæmda vítaspyrnu snemma leiks en klúðraði af vítapunktinum við mikinn fögnuð frá báðum stuðningsmannahópum. Stuðningsmenn Djurgården fögnuðu klúðrinu dátt og jókst fögnuðurinn hálftíma síðar þegar Sirius náði forystunni.
Sirius vann að lokum 1-0 eftir opinn og fjörugan slag, við mikla kátínu allra viðstaddra áhorfenda.
Ástæðan er sú að Sirius er í harðri titilbaráttu við Hammarby, sem eru erkifjendur Djurgården og vilja stuðningsmenn alls ekki sjá Hammarby hampa titlinum.
Þrátt fyrir sigurinn er Sirius í erfiðri stöðu fyrir lokaumferðina í titilbaráttunni. Liðið þarf að sigra lokaleik sinn á útivelli gegn Göteborg og um leið að treysta á að Hammarby, sem á leik til góða, misstígi sig í einum af síðustu tveimur leikjunum sínum.
Í lokaumferðinni spilar Djurgarden úrslitaleik við BK Häcken um þriðja sæti sænsku deildarinnar, sem veitir þátttökurétt í forkeppni Sambandsdeildarinnar næsta haust. Djurgarden nægir jafntefli í þeim leik sem verður á heimavelli.

Kristian Lien bränner straff - jubel hos Djurgårdssupportrarna ????
— Fotbollskanalen (@fotbollskanal) November 22, 2026
Se alla höjdpunkter, mål och klipp från Allsvenskan på Fotbollskanalen: https://t.co/Gylx1MVU0d https://t.co/HCA6ETTr1w
Sirius tar ledningen mot Djurgården - Nartey håller sig framme ?????
— Fotbollskanalen (@fotbollskanal) November 22, 2026
Se alla höjdpunkter, mål och klipp från Allsvenskan på Fotbollskanalen: https://t.co/hJSrfYVG1T https://t.co/vgpSJdG16x

Mynd: EPA