23.11.26 - 08:35
Elvar Geir Magnússon
Man Utd reynir við Toney í janúarglugganum

Ivan Toney.

Mynd: EPA

Calvin Bassey.

Mynd: EPA

Ivan Toney.

Mynd: EPA

Manchester United vill styrkja vopnabúr sitt sóknarlega, Mac Allister ræði við Liverpool um framlengingu og Paris Saint-Germain gæti aukið áhugann á Eli Junior Kroupi. Þetta og fleira í slúðrinu.
Manchester United hyggst reyna að fá enska sóknarmanninn Ivan Toney (30), sem leikur með Al-Ahli, í janúarglugganum. Fleiri félög í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga. (Teamtalk)
Nígeríski varnarmaðurinn Calvin Bassey (26) hefur verið orðaður við Manchester United, en þessi 26 ára gamli leikmaður segist vera í viðræðum um að framlengja samning sinn við Fulham. (Standard)
Arsenal og Chelsea hafa lengi haft augastað á að fá Cesc Fabregas, stjóra Como, en hann lék á sínum tíma fyrir bæði Lundúnafélögin. (Football Insider)
Argentínski miðjumaðurinn Alexis Mac Allister (27), sem leikur með Liverpool, vill ólmur undirrita nýjan samning á Anfield og viðræður þess efnis eru að komast á næsta stig. (Football Insider)
Arsenal og Liverpool hafa lengi fylgst með Jamal Musiala (23) og gætu reynt að fá þennan þýska miðjumann til sín. Framtíð hans hjá Bayern München er í óvissu. (Talksport)
Paris St-Germain gæti sett aukinn kraft í að reyna að fá franska sóknarmanninn Eli Junior Kroupi (21) frá Bournemouth í kjölfar þess að landsliðsfélagi hans, Desire Doue (21), varð fyrir alvarlegum hnémeiðslum. (Teamtalk)
Loris Karius (33) Markvörður Schalke, hefur verið orðaður við Bayern München. Þjóðverjinn segist ekki hafa rætt við neinn um möguleg félagaskipti. (Sky Sports Þýskalandi)
AC Milan hefur meiri áhuga á að fá brasilíska sóknarmanninn Endrick (20) frá Real Madrid heldur en Nicolo Tresoldi (22) frá Club Brugge. (Gazzetta dello Sport)