Fotbolti.net
23.11.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Mourinho: Alltaf erfitt að spila eftir landsleikjahlé

Mourinho: Alltaf erfitt að spila eftir landsleikjahlé
Canon

Mynd: EPA

José Mourinho þjálfari Real Madrid svaraði spurningum eftir nauman sigur á heimavelli gegn Celta Vigo á laugardaginn.
Kominn með fjögur mörk á aðeins 62 mínútum
TENGT EFNI

Kominn með fjögur mörk á aðeins 62 mínútum

Mourinho kennir þreytu um slaka frammistöðu og bendir á neikvæð úrslit annarra stórvelda sem voru með mikið af mönnum uppteknum í krefjandi verkefnum í landsleikjahlénu sem var að ljúka.

„Þegar (Ibrahima) Konaté sendi boltann á boltastrákinn eftir eina mínútu vissi ég að það væri eitthvað að liðinu," sagði Mourinho eftir lokaflautið.

„Það er aldrei auðvelt að spila beint eftir landsleikjahlé, lítið bara á hin liðin sem voru með marga leikmenn í landsliðsverkefnum í hlénu. Þið munuð sjá að Arsenal vann ekki, Man City vann ekki, Chelsea vann ekki og Bayern ekki heldur."

Mourinho ræddi um markvörðinn Thibaut Courtois sem var að framlengja samning sinn við Real Madrid til sumarsins 2028.

„Courtois hefur verið besti markvörður heims undanfarin ár og það skapar smá vandamál fyrir okkur út af því að (Andriy) Lunin er líka frábær. Mér líkar mjög vel við hann og hann á skilið að fá meiri spiltíma."
Mourinho: Alltaf erfitt að spila eftir landsleikjahlé
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid13+2233
3Atletico Madrid12+1328
4Betis13+527
5Real Sociedad12+122
6Sevilla13-219
7Athletic12+316
8Alaves13016
9Villarreal12+215
10Espanyol13015
11Deportivo13-115
12Racing Santander12-1314
13Celta13-113
14Vallecano12-712
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Valencia13-1112
18Levante12-511
19Elche12-610
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.