Fotbolti.net
23.12.05 - 00:13
Magnús Már Einarsson

Scharner til Wigan (Staðfest)

Scharner til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Austurríski varnarmaðurinn Paul Scharner hefur samþykkt að fara til Wigan frá Brann og mun hann ganga til liðs við enska félagið þegar að félagaskiptaglugginn opnaði í janúar en Birmingham hafði einnig boðið í leikmanninn í haust.
,,Wigan er félag í frábærri stöðu og með mikinn metnað. Að spila í úrvalsdeildinni er draumur fyrir mig og mig hlakkar mjög til að byrja að spila með liðinu," sagði Scharner sem á ellefu landsleiki að baki.

Paul Jewell stjóri Wigan sagði: ,,Paul mun vera frábær kaup fyrir okkur. Hann er mjög fljótur, sterkur í loftinu og getur spilað hvar sem er í vörninni eða á miðjunni."

Scharner gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Leeds í enska bikarnum fjórða janúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.