23.12.05 - 18:21
Cicinho fer til Real Madrid (Staðfest)

Cicinho og Harry Kewell

Mynd: Getty Images

Cicinho og Harry Kewell

Mynd: Getty Images
Stórlið Real Madrid hefur fest kaup á brasilíska hægri bakverðinum Cicinho en félagið tilkynnti þetta í dag. Þessi frábæri bakvörður er mjög sókndjarfur og mun væntanlega mynda eitt allra skemmtilegasta bakvarðarparið í dag með landa sínum Roberto Carlos.
Cicinho þykir minna um margt á Cafu og er talinn líklegasti arftaki hans í landsliðinu. Cicinho er 25 ára gamall og skrifaði undir fimm ára samning við Real en hann hefur æfingar með sínum nýju liðsfélögum þegar þeir snúa aftur úr jólafríi þann 29. desember.
Cicinho er með ítalskt vegabréf og tekur þar með ekki eina af þremur stöðum innan liða sem leikmaður utan Evrópusambandsins en hann er fimmti landsliðsmaður Brasilíu hjá Madrídingum.
Ronaldo, Roberto Carlos, Julio Baptista og Robinho eru hinir en liðið rak Brasilíska þjálfarann Vanderlei Luxemburgo fyrr í desember.
Cicinho kemur frá Sao Paulo og er kaupverðið á honum talið vera fjórar milljónir Evra. Komin er gríðarleg samkeppni um stöður í liði Real en um hægri bakvarðarstöðuna berjast nú auk Cicinho, Michel Salgado og Sergio Ramos sem báðir eru landsliðsmenn Spánar auk Úrugvæska landsliðsmannsins Diogo.
Real Madrid er í fimmta sæti í La Liga, ellefu stigum á eftir Barcelona.