24.01.05 - 15:57
Magnús Már Einarsson
Eyþór Guðnason til HK (Staðfest)


Mynd: hk.is


Mynd: hk.is
HK hefur fengið sóknarmanninn Eyþór Guðnason frá Njarðvík. Eyþór sem er 29 ára hefur leikið með Njarðvík undanfarin fjögur ár en var þar áður búsettur í Bandaríkjunum í tæpa tvo áratugi og spilaði þar með skólaliðum.
Fótbolti.net greindi frá því í haust að hann væri að æfa með HK en nú hefur hann ákveðið að ganga til liðs við félagið. Eyþór hefur verið markahæsti leikmaður Njarðvíkinga síðustu þrjú árin og samtals skorað 38 mörk í 60 deildaleikjum fyrir félagið en hann skoraði 5 mörk í 1. deildinni síðasta sumar.
Heimild: Heimasíða HK
Heimild: Heimasíða HK
