Fotbolti.net
24.01.06 - 11:56
Magnús Már Einarsson

Nemeth til Strasbourg (Staðfest)

Nemeth til Strasbourg (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slóvaski framherjinn Szilard Nemeth hefur yfirgefið Middlesbrough og gengið til liðs við franska liðið Racing Strasbourg á láni út tímabilið en samningur hans við Boro rennur út í sumar þannig að í raun er hann alfarinn frá liðinu.
Nemeth sem er 27 ára kom til Boro árið 2001 en hann skoraði alls 23 mörk í 117 úrvalsdeildarleikjum fyrir liðið á þessum árum en hann hefur fengið fá tækifæri hjá Steve McClaren á þessari leiktíð.

Strasbourg sem er í næstneðsta sæti í frönsku deildinni hefur einnig fengið miðjumanninn Yacine Abdessadki frá Toulouse til að styrkja félagið í botnbaráttunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.