24.01.06 - 19:41
Magnús Már Einarsson
Kozak til WBA (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion hefur fengið miðjumanninn Jan Kozak að láni út tímabilið frá slóvaksa liðinu Artmedia Bratislava sem gerði fína hluti í Meistaradeildinni í haust.
Bryan Robson stjóri WBA ákvað að semja við Kozak eftir að hann var til reynslu hjá félaginu í síðustu viku. ,,Ég var mjög hrifinn af Jan þegar að ég sá frammistöðu hans gegn Porto og Rangers í Meistaradeildinni."
,,Jan er sókndjarfur miðjumaður. Hann er mjög leikinn og getur skapað og skorað mörk," sagði Robson sáttur.
,,Jan er sókndjarfur miðjumaður. Hann er mjög leikinn og getur skapað og skorað mörk," sagði Robson sáttur.
