Fotbolti.net
24.01.07 - 13:07
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Simon Davies til Fulham (Staðfest)

Simon Davies er á leiðinni á Craven Cottage

Simon Davies er á leiðinni á Craven Cottage

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Simon Davies hefur gengið til liðs við Fulham frá Everton fyrir óuppgefna upphæð og skrifaði hann undir samning á Craven Cottage til 2010.
Davies byrjaði ferilinn sinn hjá Peterborough áður hann fór til Tottenham þar sem hann stóð fyrir sínu áður en hann var seldur á Goodison Park árið 2005.

Tími hans á Merseyside var hinsvegar ekki eins árangursríkur og mun hann núna reyna að koma ferlinum sínum af stað á nýjan leik í höfuðborginni.

,,Ég er mjög ánægður að hafa gengið til liðs við Fulhan þar sem Chris (Coleman) er stjóri sem ég þekki og dáist að og ég held að leikstíll þeirra muni henta mínum leik," sagði Davies.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.