24.02.05 - 15:01
Ade Akinbiyi farinn til Burnley (Staðfest)

Ade Akinbiyi farinn til Burnley


Ade Akinbiyi farinn til Burnley

Ade Akinbiyi var í dag seldur frá Íslendingaliðinu Stoke til Burnley. Sheffield United höfðu áður komist að samkomulagi við Stoke en að lokum valdi Akinbiyi Burnley.
Kaupverðið á þessum fyrrum úrvalsdeildar framherja er 600.000 pund. Akinbiyi hafði áður spilað með Wolves, Leicester og Crystal Palace áður en hann kom frítt til Stoke.
Akinbiyi hefur heldur betur lifnað til lífsins hjá Stoke eftir heldur dapra dvöl hjá Crystal Palace. Líklegt er að hann nái að spila sinn fyrsta leik fyrir Burnley gegn Preston næstkomandi laugardag.
Akinbiyi hefur heldur betur lifnað til lífsins hjá Stoke eftir heldur dapra dvöl hjá Crystal Palace. Líklegt er að hann nái að spila sinn fyrsta leik fyrir Burnley gegn Preston næstkomandi laugardag.
