Fotbolti.net
24.02.05 - 15:45
Elvar Geir Magnússon

Ögmundur ver mark Fjölnis (Staðfest)

Ögmundur ver mark Fjölnis (Staðfest)
Canon

Mynd: vikingur.net

Ögmundur Viðar Rúnarsson markvörður er genginn til liðs við Fjölni sem leikur í 1.deildinni. Ögmundur hefur á síðustu árum leikið með Víking og Val en einnig komið við hjá KR og KVA. Hann var aðalmarkvörður Víkings þar til Martin Trancik kom til félagsins fyrir síðasta leiktímabil en þá missti hann sæti sitt.
Ögmundur er 27 ára og hefur yfir mikilli reynslu að búa. Ljóst er að markvarslan verður ekki mikið vandamál í Grafarvoginum næsta sumar þar sem auk Ögmundar eru til staðar Ríkharður Snorrason sem hefur varið mark liðsins undanfarin ár og Þórður Ingason 17 ára en hann er stórefnilegur markvörður.

Sjá einnig:
Hin hliðin á Ögmundi (desember 2004)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.