Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. mars 2020 23:00
Brynjar Ingi Erluson
Milner velur athyglisvert úrvalslið í sóttkvínni
James Milner
James Milner
Mynd: Getty Images
James Milner, leikmaður Liverpool á Englandi, virðist ekki leiðast að vera heima hjá sér í einangrun en hann birtir reglulega myndbönd á Twitter og leyfir fylgjendum að sjá hvað hann er að bralla.

Hann valdi í kvöld úrvalslið leikmanna en gerði það þó aðeins með því að nota hluti á heimilinu.

Útkoman er ansi áhugaverð en það má finna leikmenn á borð við Thierry Henry, David Silva, Patrick Berger, Kyle Walker og Frank Lampard.

Fabio Capello er þjálfari liðsins.

Liðið: Joe Hart (M), Kyle Walker, John Terry, Dominic Matteo, Trevor Cherry, David Silva, David Batty, Gini Wijnaldum, Patrick Berger, Thierry Henry, Geoff Horsefield
Bekkur: Brad Friedel, Gabriel Heinze, Frank Lampard, Ruel Fox, Titi Camara, David Healy, Lewis Dunk


Athugasemdir
banner
banner
banner