Fotbolti.net
24.03.26 - 15:40
Kári Snorrason

Griezmann í Orlando (Staðfest)

Griezmann í Orlando (Staðfest)
Canon

Mynd: MLS

Antoine Griezmann hefur gengið til liðs við bandaríska félagið Orlando City. Hann gengur til liðs við félagið í sumar á frjálsri sölu frá Atlético Madrid.

Frakkinn semur við liðið út tímabilið 2028 með möguleika á framlengingu til ársins 2029.

Griezmann hefur spilað 46 leiki með Atlético á tímabilinu og hefur skorað 14 mörk. Hann var lykilmaður í liði Frakklands sem vann HM í Rússlandi 2018.
Dagur Dan Þórhallsson lék með Orlando City frá 2023 en hann samdi við Montreal fyrir áramót. Orlando er með þrjú stig eftir fimm umferðir í MLS deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.