Fotbolti.net
24.03.26 - 10:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Landsliðskona Bermúda í FH (Staðfest)

Landsliðskona Bermúda í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: FH

Hertz
FH tilkynnti í dag að Nia Raisa Christopher væri gengin í raðir félagsins og skrifar undir samning sem gildir út komandi tímabil í Bestu deildinni.

Hún er 24 ára og hefur eingöngu spilað í Bandaríkjunum til þessa á ferlinum. Hún var samherji Thelmu Lóu Hermannsdóttur, núverandi leikmanns FH, hjá Fort Lauterdale í bandarísku USL deildinni.
„Nia er, eins og nafnið gefur til kynna, framherji. Kemur til okkar frá Fort Lauderdale United sem spilar í bandarísku USL deildinni og er landsliðskona Bermúda. Hún er akkúrat sú týpa af framherja sem við vorum að leita að, fljót, góð að koma sér í færi og fylgin sér," segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, við FH media.

Nia er þriðji leikmaðurinn sem FH, sem endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar og Mjólkurbikarsins á síðasta tímabili, hefur fengið í vetur.

FH
Komnar
Mackenzie Smtih frá Fram
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir frá Haukum
Nia Christopher frá Bandaríkjunum

Farnar
Thelma Karen Pálmadóttir í Häcken
Arna Eiríksdóttir í Vålerenga
Elísa Lana Sigurjónsdóttir til Kristianstad
Maya Hansen
Macy Elizabeth Enneking
Margrét Brynja Kristinsdóttir í Val
Valgerður Ósk Valsdóttir í Hauka
Harpa Helgadóttir í Fram (lán)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.