Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd orðað við tvö stór nöfn - Sancho til í að taka á sig launalækkun
Powerade
Alphonso Davies til United?
Alphonso Davies til United?
Mynd: EPA
Bruno falur fyrir 60 milljónir punda segja brasilískir miðlar.
Bruno falur fyrir 60 milljónir punda segja brasilískir miðlar.
Mynd: EPA
Sancho aftur til Dortmund?
Sancho aftur til Dortmund?
Mynd: EPA
Enski kantmaðurinn Jadon Sancho gæti snúið aftur til Dortmund, Zinedine Zidane samþykkir að taka við Frökkum og Roberto de Zerbi er orðaður við Tottenham. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins. Það er BBC sem tekur saman það helsta og samantektin er í boði Powerade.



Jadon Sancho (25) vængmaður Manchester United er sem stendur á láni hjá Aston Villa. Hann hefur rætt við Borussia Dortmund um mögulega endurkomu til Þýskalands. Sancho er tilbúinn að taka á sig launalækkun til að snúa aftur til Dortmund. (Sky Sports í Þýskalandi)

Zinedine Zidane (53), fyrrum stjóri Real Madrid, hefur samþykkt að taka vð Frökkum eftir HM. Zidane, sem skoraði tvennu í úrslitaleik HM 1998, mun taka við af Didier Deschamps. (ESPN)

Roberto de Zerbi, fyrrum stjóri Brighton og Marseille, er opinn fyrir því að verða næsti stjóri Tottenham til frambúðar ef félagið heldur sér í úrvalsdeildinni. (Telegraph)

Man Utd hefur ekki enn sett sig í samband við mögulegan kandídat varðandi stjórastarfið hjá félaginu. Stjórnin mun ekki flýta sér við að taka ákvörðun. (Sky Sports)

Ráðamenn Newcastle hafa áfram trú á Eddie Howe sem er undir pressu. Búist er við því að leikmannaveltan verði mikil í sumar. (Mail)

Josh Acheampong (19) hægri bakvörður Chelsea gæti farið frá félaginu í sumar og er litið á hann sem álitlegan kost fyrir Crystal Palace. (Football Insider)

Ao Tanaka (27) miðjumaður Leeds er á óskalista Schalke og Hannover í Þýskalandi. (Teamtalk)

Man Utd vill fá Alphonso Davies (25) vinstri bakvörð Bayern Munchen í sumar. Bayern er sagt opið fyrir tilboðum í kanadíska landsliðsmanninn. (CFBayerninsider)

Man Utd vill líka fá Bruno Guimaraes (28) fyrirliða Newcastle. Fréttir í Brasilíu segja að miðjumaðurinn gæti verið falur fyrir 60 milljónir punda. (Sports Illustrated)

Antoine Griezmann (35) er á förum frá Atletico Madrid í sumar og heldur til Orlando City í MLS deildinni. (Times)

Enzo Fernandez, miðjumaður Chelsea, er opinn fyrir því að fara til Real Madrid í sumar. (talkSport)

Leverkusen fylgist náið með Fabian Hürzeler, stjóra Brighton, upp á möguleikann að hann taki við þýska liðinu í sumar. (Sky í Þýskalandi)
Athugasemdir
banner