Fotbolti.net
24.03.26 - 18:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Salah fer frá Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)

Mohamed Salah. Einn besti leikmaður sem spilað hefur fyrir Liverpool.

Mohamed Salah. Einn besti leikmaður sem spilað hefur fyrir Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Mohamed Salah mun yfirgefa Liverpool eftir tímabilið. Félagið hefur staðfest þetta.

Í yfirlýsingu Liverpool kemur fram að Salah hafi náð samkomulag um að þetta verði hans síðasta tímabil hjá félaginu.
Hann hefur verið í níu ár hjá Liverpool og mun kveðja félagið sem algjör goðsögn.

Í yfirlýsingu Liverpool segir að Salah hafi viljað tilkynna stuðningsmönnum þetta eins fljótt og auðið var, til að vera opinn um framtíð sína - af virðingu og þakklæti til þeirra.

Salah hefur skorað 255 mörk í 435 leikjum fyrir Liverpool. Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félaginu og er án efa einn besti leikmaður í sögu félagsins.

„Þar sem enn er mikið undir á tímabilinu er Salah einbeittur að því að ná sem bestum árangri með Liverpool. Tíminn til að fagna ferli hans og afrekum mun koma síðar á árinu þegar hann kveður Anfield," segir í yfirlýsingunni frá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.