Fotbolti.net
24.04.19 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Pep: Horfum ekki á sjónvarp og lesum ekki blöðin

Pep: Horfum ekki á sjónvarp og lesum ekki blöðin
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City endurheimti toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar með 0-2 sigri gegn nágrönnum sínum á Old Trafford í kvöld.
Staðan var markalaus í fyrri hálfleik en Bernardo Silva og Leroy Sane skoruðu eftir leikhlé og var sigur Man City aldrei í hættu eftir mörkin. Pep var að vonum kátur að leikslokum, enda afar nálægt öðrum Englandsmeistaratitlinum í röð í fyrsta sinn í sögu félagsins.

„Það var mikil pressa á okkur fyrir þennan leik, sérstaklega vitandi af Marcus Rashford og Jesse Lingard sem geta tekið hlaup bakvið vörnina. Ég sagði við strákana að við þyrftum að spila til að vinna. Það skiptir ekki máli þó við fáum mörk á okkur," sagði Pep.

„Núna er mikilvægast að halda rónni, sérstaklega fyrir næsta leik gegn Burnley. Við horfum ekki á sjónvarp og lesum ekki blöðin. Leikmenn eru mikið í nuddi. Við höfum verið að spila í þessum gæðaflokki síðustu sex mánuði án þess að fá tíma til að anda. Það er ótrúlegt.

„Við hækkuðum staðalinn í ensku úrvalsdeildinni þegar við fengum 100 stig. Það er nýi staðallinn og Liverpool er að elta. Það sem þeir hafa gert er ótrúlegt en við erum með titilinn í okkar eigin höndum. Bæði lið eiga skilið að vinna titilinn en það getur bara verið einn sigurvegari."


Það eru aðeins þrjár umferðir eftir af tímabilinu og á Man City næst leik við Burnley. Liverpool fylgir fast á hæla City og munar aðeins einu stigi á liðunum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.