24.05.06 - 13:21
Magnús Már Einarsson
Lovenkrands til Schalke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Danski framherjinn og kantmaðurinn Peter Lovenkrands hefur hafnað þeim möguleika að vera áfram hjá Glasgow Rangers og hefur hann þess í stað ákveðið að gera þriggja ára samning við þýska liðið Schalke.
Þessi 26 ára gamli leikmaður kom til Rangers fyrir sex árum frá AB Copenhagen á 1,3 milljónir punda en hann hefur nú yfirgefið skoska liðið frítt.
,,Schalke er stórt félag þar sem ég vil vinna titla. Ég talaði við Soren Larsen og Christian Poulsen (Einnig Danir) um Schalke og það sem þeir sögðu mér hjálpaði mér að taka ákvörðun," sagði Lovenkrands sem á fjórtán landsleiki að baki fyrir Dani.
,,Peter er vinstrifótar, mjög fljótur og hefur auga fyrir markinu. Hann mun auka möguleikar okkar á að fara fram," sagði Andreas Muller hjá Schalke.
Lovenkrands skoraði 18 mörk fyrir Rangers á nýliðnu tímabili, þar af fjögur í Meistaradeildinin en spænsku liðin Villareal og Osasuna reyndu einnig að fá hann í sínar raðir á dögunum.