24.05.06 - 14:29
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Liverani til Fiorentina (Staðfest)

Liverani fer framhjá varnarmanninum Phillippe Mexes í leik Lazio og Roma

Mynd: Getty Images

Liverani fer framhjá varnarmanninum Phillippe Mexes í leik Lazio og Roma

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Fabio Liverani gekk í dag til liðs við Fiorentina. Liverani er 30 ára gamall og hefur verið sterklega orðaður við ‘Viola’ þegar það varð ljóst að hann myndi ekki framlengja samninginn sinn við Lazio.
Fiorentinaa fá því þennan sterka leikstjórnanda á frjálsri sölu en hann heftur eytt síðustu fimm árum í höfuðborginni hjá Lazio, þrátt fyrir að hafa alltaf verið stuðningsmaður Roma.
Liverani, sem er ítalskur landsliðsmaður og var í æfingahóp Marcello Lippi fyrr í þessum mánuði en komst ekki í lokahópinn fyrir Heimsmeistaramótið, hefur skorað níu mörk í 158 leikjum í Serie A.
Liverani, sem er ítalskur landsliðsmaður og var í æfingahóp Marcello Lippi fyrr í þessum mánuði en komst ekki í lokahópinn fyrir Heimsmeistaramótið, hefur skorað níu mörk í 158 leikjum í Serie A.
