24.05.06 - 15:07
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ahmed Hassan til Anderlecht (Staðfest)

Ahmed Hossan í baráttunni við Dwight Yorke

Mynd: Getty Images

Ahmed Hossan í baráttunni við Dwight Yorke

Mynd: Getty Images
Belgísku meistaranir í Anderlecht gengu í dag frá samningum við fyrirliða egypska landsliðsins, Ahmed Hassan. Hassan er 31. árs gamall og leiddi Egypta til sigurs á Afríkumótinu fyrr á þessu ári og var valinn leikmaður mótsins.
Hassan gerði tveggja ára samning við belgíska liðið en hann kemur frá Besiktas á frjálsri sölu en hann hafði átt í útistöðum við liðið og meðal annars skrópað á æfingum. Hann var einnig orðaður við Newcastle, Fulham og Blackburn en ekkert varð úr því.
Anderlecht hefur síðan einnig náð samningum Jelle Van Damme, leikmann Southampton, en eiga eftir að ná samningum um kaupverð við enska liðið. Það er þó talið að það sé ekki meira en 500 þúsund pund en þessi 22 ára varnarmaður var á síðasta tímabili á láni hjá Werder Bremen.